Hús á Flórída til leigu

Forsíða

Leiðakort

Myndir

Golf

Afþreying

Leiguverð

Forsíða

Til leigu nýtt einbýlishús (byggt 2007) á vesturströnd Flórída við Mexíkóflóann.  Húsið er staðsett á Bæjarmörkum Sarasota / Bradenton  og er 200m2

Í húsinu eru 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, þvottahús og tvöfaldur bílskúr. 

Húsið er vel búið húsgögnum og tækjum.  Þrír flatskjáir eru í húsinu, heimabíó og þráðlaust net sem gestir njóta án endurgjalds svo og skype sími. 

Úr stofu er gengið út á afgirtar svalir með sólhúsgögnum og gasgrilli.  Afgirtur garður með sundlaug og heitum potti fyrir íbúa götunnar er rétt við lóðarmörkin.

Húsið er á svæði sem heitir Lakewood Ranch.  Lakewood Ranch skiptist  upp í hverfi og þetta hús er í hverfi sem heitir Wexford og er vaktað.

Innan svæðisins eru tveir almennings golfvellir og í Lakewood Ranch er einnig lítill miðbæjarkjarni með veitingastöðum, bíói og litlum verslunum.  Það tekur liðlega 20 mínútur að aka á ströndina.

Miðbæjartorgið í Lakewood Ranch

Aðalgatan hér eru veitingastaðir og litlar sérverslanir

free hit counter login page
Provided by website-hit-counters.com hit counters.

Smelltu hér til að sjá stærra kort